Hotel Rangá kynnir
Viðburðadagskrá Hótel Rangá
Skapaðu hlýjar minningar með okkur
Íslensk menning í forgrunni
Vordagskrá
Viðburðadagskrá Hótel Rangá færir íslenska menningu nær gestum okkar með einstökum og vönduðum upplifunum. Í vor bjóðum við upp á fjölbreytta dagskrá í apríl og maí; þar á meðal bókmenntastund með Yrsu Sigurðardóttur, kraftmikla hammond-tónleika með Andreas Hellkvist og íslensku söngkonunni Inki, og gómsæta kynningu á hinu eðal Flóka viskíi.
Viðburðir á Suðurlandi
Menningastundir í sveitasælunni
Allir eru hjartanlega velkomnir á viðburðadagskrá Hótel Rangá. Á matseðlinum er sérstakt hátíðartilboð, þar sem menning og matargerð mætast í ógleymanlegri stemningu.
April 21 • 18:00
Hammond-tónleikar á Hótel Rangá
Sænski hammond-snillingurinn Andreas Hellkvist og Inki koma fram 21. apríl kl. 18. Tónleikarnir eru ókeypis og í boði er hátíðartilboð á tveggja rétta matseðli á 6.500 kr. Andreas er jafnvígur á jazz, soul, rokk og popp – það er hreinlega ómögulegt að dilla sér ekki við hammond leik hans.
May 16 • 17:30
Flóki viskísmökkun
Vertu með í Flóka viskísmökkun á Hótel Rangá! Lærðu um íslenska byggið og sögu þessa gæðaviskís. Frítt fyrir gesti hótelsins og hátíðartilboð á þriggja rétta matseðli ásamt viskísmökkun. Tilvalið tilboð til að gera vel við viskíunnandann.
May 26 • 18:00
Bókalestur með Yrsu Sigurðardóttur
Hittu Yrsu Sigurðardóttur á Hótel Rangá og vertu fyrstur til að heyra hana lesa úr nýjustu bókinni sinni. Sannkölluð gæðastund fyrir bókaunnandann! Hátíðartilboð á tveggja rétta matseðli á 6.500 kr. í boði. Vertu velkomin í þessa dularfullu bókmenntaveislu.