Hótel Rangá

Bestu verðin ef bókað er beint
Hotel Rangá red logo.

“Eftir fjöldamargar viðskiptaferðir erlendis eru hótel með góða og persónulega þjónustu í uppáhaldi hjá mér. Við aðlögum okkur að kröfum og óskum hvers gests, og hjálpum þeim að uppgötva náttúrufegurðina og ævintýrin í nágrenni hótelsins. Persónuleg þjónusta, góður matur og gæðastundir - Fyrir það stöndum við á Hótel Rangá”

Signature of Friðrik Pálsson - the owner and hotelier of Hotel Rangá.
Friðrik Pálsson
Hóteleigandi
/

Tilboð

Okkar sígildu tilboð henta fyrir öll tækifæri. Skapið góðar minningar í rólegu og rómantísku umhverfi. 

Woman lounges in a Hotel Rangá geothermal hot tub as the sun shines on her.
Hotel Rangá's South America suite decorated with authentic decor and artwork.
Photo by Paige Deasley

Ævintýri á Hótel Rangá

Hóteleigandi Hótel Rangá

Friðrik Pálsson

Friðrik Pálsson er góður sögumaður og gestgjafi af guðs náð. Það var kannski ekki undarlegt að hann yrði hóteleigandi, eftir óteljandi viðskiptaferðalög um heiminn, þar sem hann reyndi af eigin raun hvað gæði og góð þjónusta eru mikilvægir þættir í veitinga- og hótelrekstri. Áratuga reynsla Friðriks sem ferðamanns þýðir að frábær þjónusta og gestrisni eru þeir þættir sem hann leggur höfuðáherslu á. Hann er stöðugt að leita leiða til að gera upplifun gestanna betri og meiri. Í raun hafa hugmyndir hans gefið hótelinu alveg nýja vídd – með endurnýjun og hönnun herbergja, meðal annars með verkum eftir íslenska listamenn og með því að reisa hið einstaka stjörnuskoðunarhús.

Þegar þú heimsækir Hótel Rangá er líklegt að þú sjáir Friðrik á ferðinni, annað hvort að leiðbeina gestum um bestu áfangastaði í nágrenninu eða þá í matsalnum eða á barnum að segja gestum sögur.

Friðrik Pálsson, owner and hotelier of Hotel Rangá.
Photo by Ingibjörg Friðriksdóttir
A group of women clink glasses in the famouns Landmannalaugar hot spring on the edge of the highlands.
Overhead shot of bathers in the Landmannalaugar hot spring.
Photos by Paige Deasly
Umhverfisstefna

Sjálfbærni og umhverfið

Sjálfbærni á Hótel Rangá er eitt af forgangsverkefnum okkar. Við leggjum okkur fram um að nýta vistvænustu lausnir sem eru í boði hverju sinni.

Hótel Rangá er í hótel samtökunum Small Luxury Hotels, en keðjan tilnefndi hótelið sem hluta af "Considerate Collection". Þá tilnefningu fá aðeins sérvalin hótel innan samtakanna sem eiga það sameiginlegt að vera lítil lúxushótel með persónulega þjónustu sem leggja upp úr því að vera umhverfisvæn og samfélagslega sinnuð. 

Blogg

Á hótelblogginu okkar fræðum við gesti um náttúruperlur á Suðurlandi, afþreyingu, fréttir frá hótelinu og góð ferðaráð.

Fyrsta rafmagnsflugvélin kom til Íslands 2022. Fyrir verkefninu stóðu Matthías Sveinbjörnsson og Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangá.

Viðtal við Stjörnu-Sævar um stjörnuskoðun á Hótel Rangá, en á hótelinu erum við með bestu stjörnusjónauka á Íslandi.
 

Hvernig kom það til að við ákváðum að hanna svíturnar eftir heimsálfunum sjö? Viðtal um hönnun og hugsjón.

 

0
    0
    Karfan þín
    Your cart is emptyReturn to Shop
    Scroll to Top