• English
  • Íslenska
  • Russia
  • Hrauneyjar
  • Hotel Highland
  • Hotel Skogar
  • Hotel Ranga
  • All Season Hotels
  • Heim
  • Upplýsingar
  • Gisting
  • Verð
  • Gjafabref
  • Veitingar
  • Fundir og ráðstefnur
  • Afþreying
  • Áhugaverðir staðir
  • Landakort
  • Myndir og 360
  • Hafa samband
  • Sértilboð
  • To pass validation of validator.w3.org..in case ther's no sub navigation
  • Gjafabréf
  • Sértilboð
  • Video og Vefmyndavél
  • Fréttir
  • 12.06.2010 Summer is here
  • 28.05.2010 Become a fan on Facebook & win Prizes. Twitter, NEW Youtube video & Flickr too!
  • 04.05.2010 Latest Eyjafjallajökull volcano update!
  • 04.05.2010 Volcano News
  • 14.04.2010 Another Volcanic Eruption
  • Meira..

Mailinglist

Join our mailing list and recieve great offers Sign up
  • You are here:
  • hotelranga.is
  • IS
  • Veitingar

Veitingastaðurinn á Hótel Rangá

Mjög vel er látið af veitingunum á Hótel Rangá, enda er um mikinn metnað að ræða af hálfu hótelsins og starfsfólksins. Staðurinn er rómantískur með sætum fyrir 60 manns og í ráðstefnusalnum á annari hæð eru sæti fyrir 50 manns til viðbótar. Áhersla er lögð á persónulega þjónustu og ferkst hráefni af bestu fáanlegu gæðum sem völ er á, helst úr héraðinu. Þemað er íslenskt / skandinaviskt, en ber þó keim af frönsku og ítölsku eldhúsi.

Til að fullkomna ánægu þína af matnum þá spillir útsýnið yfir Eystri Rangá ekki fyrir, er hún rennur framhjá tær og lygn. Hótelið mælir sérstaklega með að þið prófið fiskisúpu hússins; við bjóðum nokkrar mismunandi tegundir af völdum, sérhönnuðum og samansettum réttum; dæmi um fjölbreytnina er "Surf and Turf" þar sem við framreiðum saman íslenskt lamb og humar; og svo súkkulaðiskyrkökuna okkar vinsælu.
Við bjóðum mjög fjölbreytt úrval víntegunda og vínárganga, þú finnur óvíða utan Reykjavíkur jafn mikið úrval. Kampavín,Viskí, Sérrí, Koníak getur þú drukkið í koníakstofu hótelsins á annari hæð þess.

Skandinaviska jólahlaðborð á Hótel Rangá er orðið að goðsögn, þar eru bornir fram yfir 60 mismunandi réttir hver öðrum ljúffengari, með ívafi frá öllum Norðurlöndunum. Mörg fyrirtæki bóka þessi vinsælu hlaðborð með árs fyrirvara til að tryggja sér örugglega sæti.
Hótelið býður upp á fjögurra rétta kvöldverð allt árið, sem höfðar þá gjarnan til þess árstíðabundna hráefnis sem á boðstolum er í það og það skiptið.
En við getum stolt sagt, að þetta er allt selt á vel viðráðanlegu verði.


Fordrykkir


Matseðill

Eftirréttir

BORÐVÍN

Drykkir

Af barnum

HÁDEGISVERÐUR 

  Herbergisþjónusta

  

Prenta | Senda á vin
  • Hótel Rangá
  • 851 Hella
  • Ísland
  • Sími: (354) 487 5700
  • Fax: (354) 487 5701
  • E-mail: hotelranga@hotelranga.is